Útbúnaður

Styttri ferðir - gist í skála

Þessi listi er byggður á heimasíðu Útivistar, Íslenskra Fjallaleiðsögumanna og reynslu ERS. Það sem er á honum er alls kyns drasl sem hægt er að taka með í nokkurra daga bakpokaferð, yfirleitt tekur maður aldrei allt með í einu, en þetta kemur allt til greina eftir því hvers eðlis ferðin er.  Eðlilegt er að miða við að bakpokinn fari ekki mikið yfir 15 kg.  Ef pokinn er innan við 10 kg í upphafi nokkurra daga ferðar, er líklegt að eitthvað hafi gleymst. 

Ferðafatnaður (til að klæðast í upphafi göngu)

Síðerma nærskyrta úr ullar eða flís efni

Peysa: Lopapeysa eða flíspeysa.

Sokkar, bæði þunnir og þykkir. Gott er að vera í tvennum og þeim þynnri næst fætinum. Ekki nota bómullarsokka.

Hlýjar buxur til að ganga í.  Þurfa að vera sterkar og úr efni sem þornar fljótt. Ýmislegt kemur til greina, t.d. hnébuxur úr teygjanlegu efni, flísbuxur, buxur úr ullarefni eða hugsanlega franskar fjallabuxur (undantekning frá reglunni því þær eru oftast úr bómullarefni).

Gönguskór, mjúksóla úr leðri eða rúskinni og næloni. Hægt er að fá leðurskóna með eða án Goretex (í sumum tilfellum Sympatex) og í öllu falli er hægt að vatnsverja þá töluvert með leðurfeiti. Ef um er að ræða skó úr rúskinni og næloni þá er betra að þeir séu með Goretex eða sambærilegu en þó ekki nauðsynlegt. Það sem er mikilvægast er að skórnir passi vel og séu þægilegir.

Í bakpokann

Jakki eða anorak úr vatnsheldu efni og með góðri hettu , annað hvort Goretex eða sambærilegt. Einnig hægt að notast við gúmmígalla en þeir anda ekki (t.d. fást þeir mjög léttir hjá 66°N).

Utanyfirbuxur úr sama efni. Ath: ef axlabönd fylgja ekki með buxunum er oftast mjög gott að bæta þeim við sjálfur.

Hlý nærföt (úr ull eða gerfiefnum sem anda - alls ekki bómull)

Aukapeysa

1-2 pör af aukasokkum

Góðir íslenskir ullarvettlingar, eitt eða tvö pör eru nauðsynlegir og utanyfirvettlingar úr vatnsheldu efni eru ekki til skaða.

Húfa eða lambhúshetta og e.t.v. ennisband.

Annar búnaður, sem er nauðsynlegur

Bakpoki . Gott er að miða við 50 til 60 lítra poka fyrir kvenmann og 60 til 70 lítra fyrir karlmann.

Svefnpoki - sem léttastur, helst ekki mikið yfir 2 kg.

Gamlir strigaskór eða sandalar til að vaða.

Hælsærisplástur, fyrirbyggjandi

Tannbursti og dálítið tannkrem (má setja í filmuhylki)

Sólgleraugu, sólvarnarkrem og varasalvi með sólvörn

U.þ.b. 0,5 lítra plastflaska undir vatn

Matur

Frostþurrkaður matur (forðast ber niðursuðuvörur og mat sem inniheldur mikinn vökva)  - engan saxbauta takk!

Pasta

Beikon / pulsur t.d. pepperoni (gott til að bragðbæta þurrmatinn)

Flatkökur

Súrdeigsbrauð eða rúgbrauð (venjulegt brauð verður oft til leiðinda á degi 2 eða 3)

Hrökkbrauð

Álegg:  Smjör (líka út í þurrmat eftir smekk) hangikjöt, skinka, kæfur, mysuostur, smurostur

Súkkulaðikex

Kartöfluflögur

Reyktur fiskur

Múslí (notað í morgunmat með kakódufti útí.  50-70 grömm á dag)

Harðfiskur

Þurrkaðir ávextir og rúsínur

Hnetur og súkkulaði

Djúsduft (orkuduft), kakóduft, te, kaffiduft eftir smekk

Sykur (t.d. út í te til að búa til orkute)

Pakkasúpur

Salt og pipar

Ýmislegt  sem gott er að hafa með (ef maður á eða vill taka með)

Göngustafir

Ljósfæri, t.d. vasaljós(höfuðljós), eldspýtur og kerti

Bolli til að drekka úr lækjum

Vasahnífur og snæri

Prímus og pottur / ketill - Ath. gera má ráð fyrir eldunarútbúnaði í skálunum.

Hitabrúsi - eitt nauðsynlegasta hjálpargagnið og öryggistækið. Munið að hita vatn í brúsann þegar á annað borð er verið að hita vatn

Plástur og annar sáraumbúnaður

Myndavél og filmur

Hnífapör og djúpur diskur (á að vera hægt að nota hnífapör í sem eru í skálunum)

Legghlífar

Trefill

Eldsýtur í vatnsþéttum umbúðum

2-4 metrar salernispappír

Kíkir

Stuttbuxur

Landakort og áttaviti

Kortamælir og GPS tæki til gagns og gamans

Hæðarmælir

Farsími eða talstöð

Lítið ferðaútvarp fyrir veðurfréttir

Varareimar

Sápa

Sundföt

Lítið handklæði

Rakdót

Laxapokar  til að vaða ár (notast með vaðskóm)

Úr með vekjara

Eyrnatappar (svo maður fái nú svefnfrið í skálunum)

Flugnanet

Saumadót (nál, tvinni, fingurbjörg, tölur ... )

Veski, skilríki, peningar, krítarkort

Söngbók, gítar, munnharpa eða blokkflauta

Minnisbók og penni

Lítil, létt og vatnsheld bókmennt

Og að lokum:  Hugarfar

Gott skap og heiðríkja í huga

Þrautseigja og SÖNGSTUÐ

Æskilegt er að allur innri klæðnaður sé úr ullar eða flísefnum, efnum sem halda hita þó að þau séu blaut. Forðast ber allan bómullarfatnað og gallabuxum á aldrei að klæðast á fjöllum. Skjólfatnaður verður að vera vatnsheldur. Nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm sem eru aðlagaðir að fótum notanda, forðast ber að fara á nýjum skóm í langferð. Pakka þarf öllum farangri í plastpokum ofan í bakpoka. T.d. er góð hugmynd að setja svartan ruslapoka innan í bakpokann, sem heldur þá öllu saman þurru.

Allar almennilegar ferðir enda síðan með grillveislu eða einhverju húllumhæi sem þarf að muna eftir að útvega "búnað" í.

TRÚSSFERÐ

Miðað við trússferð er hægt að leyfa sér einhvern meiri munað í mat og drykk.   T.d. kaldan kjúkling, franskar, kótilettur og sallat í staðinn fyrir þurrmat.