UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

FRÉTTIR

2012

2011

2010

2009

2008

2007

2006

2005

2004

2003
 

TENGINGAR

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Myndir frá plöntudegi 20. júní 2009

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Aðalfundur 2010

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

   

 

Fellsmörk - fréttir


26. apríl 2012
Plöntudagur verður 30. júní
Albrecht við gróðursetningu Ákveðið er ráð fyrir að halda plöntudag í Fellsmörk 30. júní núna í sumar. Hafa sameiginlega gróðursetningu og hittast svo öll austur í Króki hjá Hjalta og Júlíu um kvöldið. Farin verður kynningarferð um austasta svæðið, nýju varnargarðarnir skoðaðir, grillað saman og hafa gaman. Verður kynnt betur þegar nær dregur.

Stjórnin

apríl 2012
Aðalfundur 2012 verður 3. maí
Sælir kæru félagar nær og fjær.

Þorvaldur fundarstjóri við skörulega fundarstjórn Um leið og við viljum óska ykkur gleðilegs sumars viljum við bjóða ykkur á aðalfund Félags landnema á Fellsmörk fimmtudaginn 3. maí klukkan 20:00. Fundurinn verður haldinn í samkomusal Skógræktarfélags Reykjavíkur að Elliðavatni.

Dagskrá og akstursleiðbeiningar eru í PDF skjali

Bestu kveðjur,
Stjórnin

apríl 2012
Á sumardaginn fyrsta í Fellsmörk
The summer just arrived in Fellsmörk

Það viðraði vel á fólk og gróður á sumardaginn fyrsta. Tré eru að springa út og sumarið var greinilega mætt á réttum tíma!

Það var vel jepplingsfært um austurhluta Fellsmerkur. Lítið hefur reynt á varnargarðinn í vetur og er ekið eftir honum inn til Hlíðarbrautar og inn í Krók. Farið er meðfram garðinum til að komast inn upp í Keldudal. Laga þarf slóðana inn í brautirnar.

Gert er ráð fyrir að staðan sé svipuð frir vestan Fellið. Þar er búið að merkja fyrir varnargörðum en engar framkvæmdir hafnar.

Nokkrar myndir á myndasíðu.

22. desember 2011
Gömul kort sem sýna Fellsmörk
Á vef Landmælinga Íslands hafa verið birtar upphaflegir uppdrættir dönsku dátanna sem kortlögðu Ísland á fyrri hluta síðustu aldar. Eftir smá grams í uppdráttunum fundust fljótlega þrír uppdrættir sem tengjasts Fellsmörk. Eru það fyrst uppdrættir sem hafa væntanlega verið grunnurinn fyrir Atlaskortin í mælikvarða 1:100.000. Er hægt að skoða þá uppdrætti með að smella á þumalmyndirnar að neðan.


Uppdráttur sem sýnir Holt, Álftagróf og Keldudal eru hér fyrir neðan.

Bæjarnafnið Fell kemur svo fram á öðrum uppdrætti og gæti þá þar verið átt við Fellið í Fellsmörk.


Þessa uppdrætti og fleiri er að finna á vef Landmælinga Íslands, þar sem annars vegar er hægt að sjá bæjarteikningar og og hins vegar uppdrætti fyrir Atlas kortin sjálf.

19. desember 2011
Framkvæmdir á Fellsmörk!
VMM_4372 Skurðgrafa vinnur við grjótvörn varnargarðs - Búrfell í baksýn

Mál hafa nú þokast töluvert til betri vegar í vega- og varnargarðamálum á Fellsmörk. Að frumkvæði Haraldar í Álftagróf hefur verktakinn Suðurverk hafið vinnu við lagfæringar varnargarða og var unnið myrkranna á milli og rúmlega það fram á sunnudag síðustu helgi fyrir jól. Varnargarðarnir sem unnið er að líta á allan hátt út fyrir að vera vandaðri, betur hugsaðir og meira í þá lagt en hefur sést áður. Kominn er garður sem nær alla leið frá Holti, framhjá Álftagróf og endar þar sem slóðinn liggur upp í Hlíðarbraut.

Pano_5-1500 Yfirlit yfir framkvæmdasvæðið.
Ath. að hægt er að smella á myndina til að fá hana stóra.


Myndin að ofan að ofan sýnir framkvæmdasvæðið en einungis en samkvæmt upplýsingum starfsmanna á staðnum er einungis hluti framkvæmdanna er búinn. Garðurinn sem er kominn er á vissan hátt tilraunaverkefni með grjótvörn sem liggur ekki utan á garðinum heldur liggur út frá honum með vissu millibili. Vinnunni verður síðan haldið áfram væntanlega eftir áramót og verður þá tengt við garðinn sem rofnaði sumarið 2009. Þar verður að sögn vandað mjög til grjótvarnar þannig að garðurinn á að halda ánni í skefjum þó hún vaxi.

Nú þegar er hins vegar hægt að nota varnargarðana til að keyra inn á austurhluta Fellsmerkur og ef snjóar eru ekki til vandræða þá má gera ráð fyrir að hægt verði að komast inn á austursvæði Fellsmerkur það sem eftir lifir vetrar.

Hægt er að skoða fleiri myndir með að smella á myndirnar hér að neðan:
VMM_4312 VMM_4306 Hér er verið að vígja nýja veginn! Seinni myndin sýnir hvar búið er að ganga þannig frá að hægt sé að halda áfram inn í Hlíðarbraut og Krók.

VMM_4320 VMM_4345
Grjótvörnin lögð út

VMM_4337 VMM_4358
Aðkoman frá Álftagróf upp á varnargarðinn og á seinni myndinni sést hvernig varnargarðurinn liggur upp við gróðurlendið neðst í Hlíðarbraut

VMM_4168 VMM_4138 VMM_4147 VMM_4174
Og eins og sjá má þá var unnið rúmlega myrkranna á milli!

19. desember 2011
Vetur á Fellsmörk
Fellsmörk er ekki síður sjarmerandi að vetrarlagi en sumarlagi þó það verður að játast að erfitt getur að komast þangað ef snjóar eru miklir og/eða ef vatnavextir hafa spillt slóðunum. Þó láta ekki allir sér allt fyrir brjósti brenna og það eru að minnsta kosti alltaf einhverjar Fellsmerkurferðir á austurhluta Fellsmerkur yfir veturinn hjá Hjalta og Júlíu í Króki, bræðrunum Einari Ragnari og Gunnari í Hlíðarbraut og Helgu og Auðunni i keldudal.

Bræðurnir voru á ferð um síðustu helgi aðventunnar og það var töluverður snjór í skógræktinni snjódýpt nokkuð víða um 1 meter en utan Fellsmerkur var víðast minni snjór. Myndirnar sem fylgja með tala sínu máli.

Jólaleg sýn til Búrfellsins Jólaleg sýn til Búrfellsins

Jólastemning Jólastemning

Kveikt upp í útigrilli sem var undir metersdjúpum snjó! Kveikt upp í útigrilli sem var undir metersdjúpum snjó!

Séð yfir Keldudalinn Séð yfir Keldudalinn

Spor... refaspor ? Töluvert var af dýrasporum sem eru hugsanlega eftir ref.

Séð yfir Krókinn Séð yfir Krókinn

Ruslagámurinn undir Fellsfjalli Ruslagámurinn undir Fellsfjalli er alltaf myndrænn!

5. september 2011
Orðið ófært á austursvæði Fellsmerkur
Hafursá hefur aftur sótt í sama farið og sunnudag 4. september var stór hluti árinnar kominn upp að Hlíðarbrautinni á smá kafla. Það er reyndar ekki langur kafli sem vegurinn er farinn en þar dugar þó, þar sem hann er þar alveg farinn og áin ekki á færi nema breyttra jeppa.

Óvíst verður að telja með viðgerð fyrr en þá næsta vor.

 

 

 

 

    

 

LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.